Einn góđur fyrir allar konur:)
Konan fór með vinkonum sínum á barinn eftir vinnu.
Þær sátu og drukku kokteila þegar hávaxinn, myndarlegur og ótrúlega kynæsandi maður á besta aldri gekk inn á barinn.
Hann var svo sláandi myndarlegur að konurnar hreinlega gláptu á hann.
Maðurinn myndarlegi tók eftir augnaráði konunnar og gekk beint til hennar (eins og allir karlmenn hefðu gert).
Áður en hún gat beðist afsökunar á því að hafa starað á hann, hallaði hann sér að henni og hvíslaði: "Ég geri hvað sem er, og ég meina algjörlega hvað sem er, fyrir þig, alveg sama hversu kinkí það er, fyrir 2 þúsund kall... með einu skilyrði..."
Konan var algjörlega slegin út af laginu, næstum orðlaus (sem gerist nú ekki oft) en stundi að lokum upp spurningu um hvert skilyrðið væri.
Maðurinn svaraði: "Þú þarft að segja mér hvað þú vilt í hvorki fleiri né færri en þremur orðum."
Konan íhugaði tilboðið eitt augnablik, dró síðan tvo þúsundkalla upp úr veskinu sínu, þrýsti þeim í lófa mannsins, ásamt heimilisfanginu sínu, horfði svo djúpt í seiðandi augu hans og sagði hægt en ákveðið...
...."Þrífðu húsið mitt"
Ţví jólin eru ađ koma.........
Já það má sko með sanni segja að tíminn líði hratt á gervihnattaöld.
Ekki nema 22dagar til jóla
, hér á bæ ríkir sko mikill spenningur fyrir þeim og öllu sem þeim fylgir.
Sá yngsti ENNÞÁ hehe er að tapa sér yfir jóladagatali sjónvarpsins í ár, enda fjallar það um Dýrmund og rottuna Rottó sem týna og bjarga dýrunum í Húsdýragarðinum. Sveinn Nökkvi opnar samviskusamlega 1 glugga á dag og þann rétta - en við leitum saman að þessum rétta glugga - en það er samt spenningur í að opna bara alla en hann heldur alveg í sér ENNÞÁ allavega hehehe.
Við erum búin að skreyta hátt og lágt og á bara eftir að skella upp jólatrénu sem verður sett upp 23.des. nk.
Það vantaði reyndar nýja seríu í gluggan hjá Sveini Nökkva kalli en við fórum með Svenna afa í gær í húsasmiðjuna og fann Sveinn Nökkvi sér snjókall með seríu sem hann vill hafa í glugganum sínum, ákveðinn ungur maður hér á ferð og var hann keyptur. Eftir ljósakaupin drógum við afann í blómval ( ekki langt að fara hehehe) til að skoða jólalandið sem Sveinn Nökkvi vissi að afi sinn væri ekki búinn að sjá.
Og mátti varla sjá hvor skemmti sér meira hehehe.
María kjellingin er svo bara alveg að fara koma LOKSINS!! en hún lendir í kefló seinnipartinn í dag....já þið lásuð rétt í DAG!!!! ég er sko ekki að trúa þessu.
Bumban stækkar bara og stækkar enda ekki annað hægt að gera hehehe, en guð ég hreinlega veit ekki hvar ég á eftir að enda. Ég er mun stærri um mig núna en þegar ég var komin jafnlangt með Svein Nökkva!!!! En það er kannski ekki skrítið þar sem ég hreinlega ELSKA að borða og narta - alveg stórhættulegt hehehe.
Farin að fá járn í æð aftur svo passið ykkur bara ég er að verða rosalega sterk hehehe segi svona.
Hér er búið að baka 4sortir af smákökum, föndra mikið og meira eftir, skrifa öll jólakort, nánast búið að kaupa allar jólagjafir verður klárað í þessari viku (fyrir utan Svein Nökkva og Gulla).
Á Laugardaginn förum við Gulli í jólahlaðborð á vegum vinnunnar hans á Vox, hlakka ekkert smá til. Svo á Sunnudaginn ætla stelpulingarnir mínir að kíkka í heimsókn og ætlum við að labba laugarveginn og koma svo í hlýjuna á Skúló og úða í okkur dýrindis kræsingum ala við allar hehehe. OH get ekki beðið - enda verður matur á borðstólunum hehehehe.
Þeir feðgar eru búnir að fá jólaklippinguna og eru orðnir ekkert smá flottir, en ég fer á mánudaginn:)
Sveinn Nökkvi er ekki bara spenntur yfir jóladagatalinu og fyrir jólunum heldur bíður hann spenntur eftir 12.des þegar jólasveinarnir fara einn og einn að týnast í bæinn og skilja þá vonandi eftir eitthvað gott eða sniðugt í skónum hans. Hann meira að segja á einn jólasveinabúning enda svoddan jólaSVEINN:)

Jæja hef ekki meira að blaðra um og veit svosem ekkert hvort einhver les þetta rugl í mér hér lengur.
Jæja ef þið lesið þetta þá kannski skiljiði eftir ykkur spor.
Annars hafið það bara sem best.
kv
Helga og co
Tíminn líđur hratt
Já einhvern veginn finnst mér tíminn fljúga áfram.
Alltof stuttu til jóla - samt ekkert stress hér á bæ fyrir þeim.
Búið að ákveða hverjir fá jólagjafir frá okkur í ár og hvað hver og einn fær.
Og búið að kaupa lang flestar.
Jólakortin verða gerð á næstu dögum - búið að ná í myndirnar í kortin sem og kortin sjálf, bara eftir að skella þessu saman og skrifa í kortin.
Ætla að vera svoldið myndarleg þessi jól og baka allavega 2 sortir af smákökum.
Þá piparkökur fyrir svenna kall því hann elskar piparkökur og leyfa honum að hjálpa - kannski maður hói í mömmurnar og krakkana þeirra og baki saman.
Svo ætla ég að baka kurltoppa því ég elska þá.
Einnig ætla ég að skella í eitt stykki snikkersís og eina Pavlovu nammi namm.
Jamm það er greinilegt að ég sé ólétt því ég hugsa ekki um neitt annað en mat hehehe.
Eina sem er ákveðið fyrir þessi jól er að við verðum hjá tengdamömmu og strákunum í mat - getum hreinlega ekki hætt því - Svenni kall spurði meira segja um daginn hvort við myndum ekki opna jólapakka hjá ömmu Tótu hehehe segi svo að börnin muni ekki. Og svo annan í jólum ætlum við að borða hjá Möggu frænku.
Finnst líklegast að við munum borða með Pabba, Írisi, Irene, Arnari og Mömmu Írisar á Jóladag eða þá að við munum vera hjá ömmu og afa. En ekkert fast ákveðið.
Hvað er málið með sjónvarpsþætti þessa dagana????
Urr ég er orðin svo húkt að hálfa væri meira en nóg...... Gulli var að ná í fyrir mig fyrstu 7 þættina í Gossip girl seríu 2 ( Búin að hofa á þá alla), nokkra þætti af Greys nýjustu er búin að horfa á fyrstu 2. Svo náði hann í nokkra þætti í Private practis og One three hill sem ég á reyndar eftir að horfa á Þank god hehe.
En svo eru nokkrir þættir í gangi í sjónvarpinu líka sem ég VERÐ að sjá. Þannig að basicly geri ég ekki annað en að vera upp í sófa og glápa á TV-ið og borða eitthvað með....hehehehehehe stundum er góð afsökun að vera ólétt. En má samt ekki misnota það.
Litli bumbubúinn er sko byrjaður að sprikla og sparka í múttu sín - æðislegast í heimi en er sami prakkarinn og hann bróðir sinn - leyfir pabba sínum ekki að finna almennilega fyrir sér - fer bara að leggja sig þegar Gulli leggur hendina á bumbuna. Eða þá að sumir ákveða að hreyfa sig ekki neitt fyrr en mamman ákveður að fara sofa eða vekja hana upp um miðja nótt svo hún sofi nú alveg örugglega ekki meira en 3-4 tíma... sem er ekki sniðugt þegar ég er ennþá að vinna og ennþá í 100% vinnu sem ég ætla mér að gera sem lengst. Þannig að amm ég er greinilega að fara eignast prakkara númer 2.
Spenningurinn á heimilinu fer stigvaxandi en það er 20vikna sónar eftir viku og getum við hreinlega ekki beðið. Ætlum að fá að vita kynið - en hvort við segjum ykkur það strax verður að koma í ljós....hehehehe kannski viljum við bara fá það skrifað á blað og kíkka þegar við viljum eða ég veit ekki.
Svo er það bara Bondinn á þriðjudaginn - vinnan hans Gulla ætlar að bjóða öllum starfsmönnum og mökum á myndina - ekki leiðinlegt það. Ég reyndar þoli ekki Bondinn en segi ekki nei við að fara frítt í bíó. hehehehe.
ER búin að setja inn albúm hér með bumbumyndum - samt þeim sömu og eru á síðunni hans Svenna.
Jæja
Nenni ekki að bulla í ykkur meira í bili.
Kv
Helga og bumbuprakkarinn
Allt og ekki neitt
Af mér er allt gott að frétta - bumban stækkar bara og stækkar veit ekki alveg hvar þetta endar þar sem ég er mun stærri um mig núna en þegar ég gekk með Svenna hehehe - en ég er líka aðeins að þyngjast sjálf finn það alveg þó að það sjáist kannski ekki mikið. Og vonandi næ ég bara að halda þessum kílóum eftir fæðingu hehehe.
Kannski samt ekki öllum sem ég mun þyngjast um núna en svona 5-7kg. Ég þarf alltaf að vera öðruvísi en aðrir það er að segja - flestir eru að reyna að létta sig um 5kg og sumir mikið meira, en nei þá er ég að reyna að bæta þeim á mig.
Þessi meðganga ætlar að verða léttari á heildina litið en þegar ég gekk með Svenna - ég er reyndar að glíma við mikinn járnskort - blóðleysi, þreytu, svima og hausverk en mér finnst það hið minnsta mál miðað við síðast þá var ég með ógleði non stopp í 4mánuði léttist bara og léttist, svo þegar það tímabil var búið þá tók við horror tímabil þar sem ég fékk svo slæma grindargliðnun sem leiddi til þess að ég fékk slitgigt og að grindin mín skekktist mikið - en nei ekkert af þessu er að hrjá mig 7-9-13. Fékk reyndar smá ógleði en ekkert til að tala um.
Þakka fyrir hvern dag sem ég er laus við grindarvandamálið.
Mér finnst æðislegt að geta borðað og borðað ( meira en ég geri venjulega hehe) það segir mér að ég sé hress og ekkert sé í ólagi.
Litli bumbubúinn er sko farinn að hreyfa sig og það ekkert smá, í þessum töluðu orðum er allt á fullu. æðislegast í heimi að finna þessar hreyfingar.
17.nóv. nk. fer ég í 20vikna sónar þá komin 20vikur og 3daga. Hlakka svo til að fara. Alltaf gaman að sjá barnið sitt. Svo er áætlað að ég fari í 2 sónara í viðbót- það er í 30viku ca og 34viku því að það er keisari 26.mars. nk og þarf að fylgjast vel með öllu - hvað barnið stækkar mikið og svona. Sem er bara gaman fyrir okkur - að fá að sjá barnið oft.
Svenni kall er svo spenntur að verða stóri bróðir og verður án efa æðislegasti stóri bróðirinn. Fór með hann um helgina að kaupa ný stígvél og spurði ég hann hvað hann ætlaði að gera við gömlu stígvélin - þá svarar hann: Nú litla barnið má fá þau. En það má reyndar ekki fá gömlu fötin hans því þau voru keypt fyrir hann segir hann hehehe.
Hann klappar líka oft bumbunni - les fyrir hana og talar við hana sem er æðislegast af öllu að fylgjast með.
Jæja ég læt þetta gott heita í bili.
Hef ekki frá meiru að segja eins og er og þarf að fara vinna í vinnunni hehehe.
Kv
helga og stækkandi bumban
P.s. setti inn nýja könnun um hvort kynið þið haldið að þetta sé.
Við segjum strákur.
Var klukkuđ :)
Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:
- Landspítalinn eldús ( kynntist Maríu minni)
- Dominós (kynntist Helgu minni)
- Lyf og heilsa
- Landspítalinn Skrifstofa
Fjórar kvikmyndir sem ég held uppá:
- Pretty woman
- Music and lyrics
- Sex and the city movie
- She´s all that
Fjórir staðir sem ég hef búið á:
- Dvergabakki ( nokkra mánaða)
- Bræðraborgarstígur
- Bjarkargata
- Skúlagata
* Var nú ekki viss um að ég myndi geta talið upp 4 en svo virðist sem ég geti það

4 sjónvarpstþættir sem ég held uppá:
- Sex and the city
- C.S.I allir
- Grey´s anatomy
- One tree hill
Og margir aðrir stelpuþættir
4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
- Mjög margir staðir í Noregi. Á samt ennþá fleiri eftir þar hehehe.
- Protúgal ( Al garve)
- Spánn ( Barcelona, Majorca)
- Holland ( Amsterdam)
4 síður sem ég skoða daglega:
- www.mbl.is
- www.visir.is
- www.facebook.com
- og svo bloggararnir góðu. ( of margir til að telja þá upp)
4 matarkyns sem ég held uppá:
- Borritos
- Rizzo pizza
- Grillmaturinn hans pabba og Gulla
- Og þessa dagana er það Subway æði.....veit ekki hvað það endist samt lengi.
4 bækur sem ég les oft:
- Uppeldi barna
- Draumaráðninga bækur
- Salka Valka ( hef lesið hana 4 sinnum)
- Kærleikskorn frá Dali lama
4 staðir sem ég myndi helst vilja vera á núna:
- Heima hjá mér
- í Karabískahafinu
- í Ástralíu hjá Maríu
- eða bara í Noregi
4 manneskjur sem ég klukka:
- Dagmar
- Harpa Sigmars
- Þórdís Hí gella
- Sandra Dögg
Jæja þetta hafðist.
Hlakka til að sjá hverjir taka þátt.
Hafið það gott elskurnar.
Verđ ađ koma međ einn brandara svona í miđju krepputalinu.
Hún gefur sig á tal við ungan pilt sem var starfsmaður á plani
Ungi pilturinn horfði undrandi á konuna og sagði: Nei frú, við erum bara með stráka hér til að setja bensín á bílinn en engar vinnukonur.
Konan varð nú heldur undrandi og spurði: Ég sé ekki betur en að þið séuð með vinnukonur þarna uppi á vegg. Augnablik sér hún bregða fyrir ótta hjá honum og sér hvað hann hugsar ( líklegast snarruglaður kúnni). En þegar hann horfði á það sem hún var að benda á segir hann með skilningsglampa í augum: Jaaaaáááá!!!! þú meinar glugga CLEAN!!!!!!
Stórar fréttir hér á ferđ:)
jæja ég hef mig loksins í að skrifa eitthvað að viti hér inn.
En það helsta sem er að frétta af okkur er að Sveinn Nökkvi verður stóri bróðir í lok mars á næsta ári. En ég er sem sagt oðrin ólétt aftur og er komin 12vikur og 4 daga í dag. ég er sett 4.apríl 2009 en barnið verður tekið með keisara í lok mars.
Fórum í 12 vikna sónar í gær og kom hann bara mjög vel út. Betur en við héldum. Fengum að vita að barnið er frekar stórt. Sem er bara jákvætt.
Læt eina sónar mynd fylgja með hér.

Jæja hafið það sem allra allra best.
Ætla að fara fá mér eitthvað að eta og svo upp í rúm að lúlla mér.
kveðja
Helga bráðum 2 barna mamma.
Blogga hvađ er ţađ????
Vildi bara láta vita að ég er á lífi
Til að slá botnin í þetta innihaldslausa blogg ákvað ég að setja inn brandara sem elskulegi Juniorinn minn sendi mér.
Eldri dama gengur inn í Gull og Silfur á Laugavegi og fer að skoða í kring um sig í rólegheitunum.
Hún sér gríðarlega fallegt demantsarmband og gengur að sýningaborðinu til að skoða það nánar.
Þegar hún svo beygir sig yfir borðið til að sjá betur, prumpar hún óvart.
Hún fer mjög hjá sér og lítur vandræðaleg kringum sig til að athuga hvort nokkur hafi tekið eftir þessu litla slysi hennarog vonar jafnframt að það komi ekki einhver sölumaður akkúrat meðan lyktin svífur um hana.
Hún snýr sér varlega við og til að fullkomna martröðina, stendur ekki bara sölumaður beint fyrir aftan hana!
Svellkaldur sölumaðurinn sýnir fullkomna fagmennsku þegar hann heilsar eldri dömunni og spyr hvort hann geti aðstoðað hana á einhvern hátt?
Mjög vandræðaleg, vonar sú gamla að sölumaðurinn hafi ekki staðið fyrir aftan hana einmitt á þessu viðkvæma augnabliki rétt áður, spyr hún, "hvað kostar svo þetta fallega demantsarmband"?
Hann svarar,
"Kæra frú, ef að þú prumpaðir bara yfir því að líta á það, áttu eftir að skíta upp á bak þegar þú heyrir verðið" !!
Yndislegt líf ţessa dagana
Bara sól og brakandi blíða...engin smá heppni í okkur að hafa valið þessa viku til að vera í fríi hehehhe.
Erum eiginlega bara búin að vera úti það er í sundi, þingvöllum,húsdýragarðinu og svo bara úti á svölum. Endalaust gaman. Svenni kall er alltaf orðinn dauðþreyttur þegar það kemur að því að fara sofa og sofnar strax.
Hann hreinlega elskar að við skulum vera í fríi öll 3 saman og erum bara að gera það sem hann vill gera.
Svo um næstu helgi 8-13.ágúst er förinni heitið alla leið á Akureyri en þar verður hann faðir minn með íbúð á leigu og ætlum við að slappa af með honum og henni ísí. förum reyndar inn á Dalvík á fiskidaginn mikla, svo vonandi eitthvað inn á Húsavík og kannski eitthvað meira fer eftir veðrum, vindum og nennu.
Svenni kall er búinn að taka loforð af mömmu sinni um að það verði farið í sund því það er stór rennibraut þarna á Akureyri.
Orðinn algjör sundkall.
Er búin að setja inn helling af myndum á síðuna hans Svenna bæði í júlí 2008 albúmið og svo lok júlí 2008 albúm. svo endilega kíkið á það. set svo inn ennþá fleiri myndir við tækifæri.
Ætla að fara gefa svenna kalli að borða og svo er förinni heitið aðeins niður í bæ. nánartiltekið í hljómskálagarðinn og kannski stoppum við og gefum öndunum gamla brauðið okkar.
Verslunarmannahelgin er ekki með öllu ráðin hjá okkur. Ég og svenni kall förum einn daginn á Selfoss að heimsækja Hrefnu,Sverrir Óla og Garðar Frey. en Sverrir óli á afmæli. Svo getur velverið að við förum í einhverja stutta bíltúra með honum pabba gamla.. væri allavega mjög gaman ef við færum eitthvað smá.
jæja ég er farin að gera okkur klár...endist ekki svo lengi inni þessa daga.
Hafið það gott elskurnar.
sjáumst
Helga
Alveg ađ fara koma sumarfrí:)
Já nú styttist óðum í að ég fari í sumarfrí.
Ekki leiðinlegt það - get eiginlega ekki beðið eftir því.
Ætla bara rétt að vona að sólin fari að láta sjá sig aftur meðan ég er í fríi - svo leiðinlegt að vera í fríi ef það er bara rigning og rok allan tíman.
Ég var að setja inn myndir hér á síðuna síðan síðasta föstudag en þá fórum við maría á smá djamm svona eins og við gerðum í gamle daga. Bara gaman að rifja upp þessa gömlu góðu daga þegar við maría og bachardi lemon vorum óaðskilin helgi eftir helgi.
Planið í fríinu er að:
Fara í sund með svenna kall.
Vera sem mest úti að leika með svenna ( róló, göngutúrar)
Reyna að fara í húsdýragarðinn, grasagarðinn og kannski einn tvo rúnta á tjörnina.
Fara til Hrefnu vinkonu á Selfoss og Ernu og Jobba.
Svo förum við norður til Akureyrar,Dalvík og Húsavík 08-12.08.08 með pabba og Írisi verður án efa skemmtileg ferð.
annað á svo bara eftir að koma í ljós.
Svo er hún María mín bara lögð af stað til Ástralíu en það eru BARA 4 mánuðir þar til við hittumst næst og þá í allavega 2-3 mánuði hehehe.
Læt fylgja með eina mynd frá föstudeginum
adios
Helgz
